Afsakið bloggleysið .. Hef bara ekki haft áhuga seinustu
daga, eða mánuð.
Fann heldur ekkert sniðugt að blogga um
og hef ekki neitt akkurat núna þannig að þetta verður mjög
líklega ekkert geðveikt skemmtilegt blogg, og líklega það
líflausasta hingað til en ég ætla nú samt að láta
mig hafa það svona fyrst það er liðið svo langt síðan síðast.

Þegar maður
fæðist er maður lítill og krumpaður. Þegar maður deyr er maður
lítill og krumpaður. Ekki eins lítill og maður er þegar maður
fæðist en þó lítill. Hvað ætli valdi þessu? Stóór
pæling!
Einmanaleiki getur orðið manni
að bana. Ef maður er of lengi einn fær maður fljótt leið á sjálfum
sér. Ætli það sé ástæðan fyrir sjálfsmorðum? Þau eru þá ekki besti
kosturinn. Ef maður er leiður á sjálfum sér þá legg ég til að maður
finni sér vin í staðinn fyrir að hanga bara einn alla daga!

Ég var að skoða myndir með
Mílenu um daginn og sá þá mynd af mér þegar ég var í 5.bekk eða
e-ð. Því tímabili vill ég helst ekki muna eftir. Né sjá myndir af!
Þá var ég með STUTT hár - strákaklippingu. Var alltaf í
íþróttafötum og asnalegum háum flatbotna skóm. Rostungur. Ég var
það!
Neinei, ætli ég hafi ekki bara verið töff ..

Eitt enn, ég fékk á heilann í
dag að tannburstinn minn væri mjúkur, loðinn og sveigjanlegur. Ég
er handviss um að ég hafi heyrt þetta einhversstaðar. Man ekki
hvar!!
Ef einhver veit það, ENDILEGA láttu mig vita.
Ég yrði mjög þakklát! 
Nú finnst mér komið
nóg, ég á örugglega ekki eftir að blogga mikið meira í þessum
mánuði.
Ég vill samt að
fólk commenti í massavís! Ég vill MÖRG comment. Bara
svona til að vita að fólk lesi þetta. 
Túdei nó mor.
Farið þið nú vel með ykkur og
verið góð við allt og alla, þá gengur allt svo miklu betur.


- Sandra M.
